Af lífi – greinasafn handa Vilhjálmi Rafnssyni lækni og prófessor

Útgefandi: Háskólaútg
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2015 333 4.190 kr.
spinner

Af lífi – greinasafn handa Vilhjálmi Rafnssyni lækni og prófessor

Útgefandi : Háskólaútg

4.190 kr.

Af lífi - greinasafn handa Vilhjálmi Rafnssyni lækni og prófessor
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2015 333 4.190 kr.
spinner

Um bókina

Af lífi er gefin út til heiðurs Vilhjálmi Rafnssyni lækni og prófessor við Háskóla Íslands á sjötugsafmæli hans. Höfundar eru nemendur, samstarfsfólk, vinir hans og fjölskylda. Umfjöllunarefnið er fjölbreytt og tengist á einn eða annan hátt því sem Vilhjálmur hefur áhuga á. Hér má lesa um vísindi, Íslendingasögur, ferðalög og eðli orsakahugtaksins svo eitthvað sé nefnt.

Vilhjálmur Rafnsson gegndi lengi stöðu yfirlæknis hjá Vinnueftirlitinu og hefur verið prófessor í heilbrigðis- og faraldsfræði við Háskóla Íslands frá 1997. Hann er afkastamikill vísindamaður og hefur gert ýmsar rannsóknir á þáttum sem áhrif hafa á sjúkdóma og heilsu. Höfundar bókarinnar segja frá verkum hans, en bregða einnig upp ýmsum myndum af Vilhjálmi sjálfum í lífi og starfi.

Ritstjórar bókarinnar eru Andri Steinþór Björnsson, Katrín Kristjánsdóttir og Sigurður Yngvi Kristinsson.

Tengdar bækur