Þýskaland – Vetrarævintýri

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2011 175 490 kr.
spinner

Þýskaland – Vetrarævintýri

Útgefandi : JPV

490 kr.

Þýskaland - Vetrarævintýri
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2011 175 490 kr.
spinner

Um bókina

Fá skáld hafa farið eldi með orði sínu um allar álfur eins og Heinrich Heine, eitt áhrifamesta ljóðskáld nítjándu aldar. Kveðskapur hans hefur þennan lýríska streng sem er aðall góðrar rómantíkur og Heine var ófeiminn við að láta í ljós andúð sína á öfgum, í hvaða mynd sem þær birtust. Róttækar skoðanir hans leiddu til þess að mörg verka hans voru úthrópuð og jafnvel bönnuð í heimalandi hans en Heine hefur löngum átt dygga aðdáendur þar sem víða annars staðar.

Þýskaland – Vetrarævintýri var á sínum tíma þyrnir í augum ýmissa fyrirmenna í Þýskalandi en öðrum konungleg skemmtun. Þessi mikli bálkur kemur nú fyrir sjónir íslenskra lesenda í þýðingu Einars Thoroddsens læknis sem er landsþekktur fyrir kímnigáfu sína. Fangbrögð hans við ljóðabálk Heines einkennast því af mjög heppilegum samslætti.

Bók þessi er tvímála því frumtexti Heines er birtur samhliða íslensku þýðingunni.

„... mjög gaman að lesa þessa texta hvora á móti öðrum.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan

Tengdar bækur