Nýjar raddir – Íslensku rafbókaverðlaunin

 

 

Forlagið efnir nú aftur til rafbókakeppninnar Nýjar Raddir sem haldin var í fyrsta skipti í fyrra. Þá unnu bækurnar Undir yfirborðinu eftir Tönju Rasmussen, Tinder match eftir Hörð Andra Steingrímsson og Allavega eftir Ernu Agnesi Sigurgeirsdóttur.

Við óskum eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð) ætlaður fyrir fullorðna.

Handrit skulu send undir nafni höfundar ásamt kynningu á honum og fyrri skrifum.

Skiladagur handrita er 10. desember, 2018.

Valin verða að hámarki þrjú handrit úr innsendum verkum sem gefin verða út í rafrænu formi undir merkjum Forlagsins að vori. Útvaldir höfundar fá samning við Forlagið, fyrirframgreiðslu upp á 100.000 kr., ritstjórn og kynningu. Frá vinningshöfum er skýrt opinberlega á útgáfudegi.

Í dómnefnd sitja Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur og ritstjóri, Haukur Ingvarsson, skáld og doktorsnemi í bókmenntum, og Sigríður Rögnvaldsdóttir, ritstjóri hjá Forlaginu.

Handrit skal senda á netfangið handrit@forlagid.is og merkja með „Nýjar raddir“.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning