Nýjar raddir – handritasamkeppni Forlagsins

 

Forlagið efnir í fjórða skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir.

Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð), ætlað fyrir fullorðna.

Handrit skulu send undir nafni höfundar ásamt kynningu á honum og fyrri ritstörfum.

Skiladagur handrita er 11. desember 2020.

Úr innsendum handritum verða valin þrjú að hámarki og gefin út undir merkjum Forlagsins næsta vor. Höfundar þeirra fá samning við Forlagið, fyrirframgreiðslu upp á 100.000 kr., ritstjórn og kynningu. Frá vinningshöfum er skýrt opinberlega á útgáfudegi.

Í dómnefnd sitja Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur og ritstjóri, Atli Bollason bókmenntafræðingur og Sigríður Rögnvaldsdóttir, ritstjóri hjá Forlaginu.

Handrit skal senda á netfangið handrit@forlagid.is og merkja með „Nýjar raddir“.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning