Ríki gullna drekans

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2006 1.550 kr.
spinner

Ríki gullna drekans

Útgefandi : MM

1.550 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2006 1.550 kr.
spinner

Um bókina

Hátt uppi í Himalajafjöllum er Dil Bahadur prins á ferð með lærimeistara sínum, hinum aldna og vitra munki Tensing. Innan skamms verður prinsinn fullnuma og tilbúinn til að taka við stjórnartaumum í Ríki Gullna drekans. Á sama tíma slást unglingarnir Alexander og Nadía í för með blaðamanninum og hörkutólinu Kate Cold til þessa afskekkta og dularfulla lands. Og fleiri hafa áhuga á þessu forboðna ríki, enda er helgt tákn þess, dreki alsettur gulli og gimsteinum, ómetanlegur dýrgripur og æðsta ósk hvers safnara. Drekans er auðvitað vel gætt en með klækjum er æsispennandi atburðarás hrint af stað og inn í hana dragast ferðalangarnir með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Ríki gullna drekans er önnur unglingabók Isabel Allende. Bækurnar hafa hlotið lof um víða veröld, enda bæði vandaðar og hörkuspennandi.

Tengdar bækur