Morðið á Bessastöðum: Stella Blómkvist #7

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2012 287 2.375 kr.
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.290 kr.
spinner
Rafbók 2012 990 kr.
spinner
Geisladiskur 2012 Mp3 1.090 kr.
spinner

Morðið á Bessastöðum: Stella Blómkvist #7

Útgefandi : MM

990 kr.2.375 kr.

Morðið á Bessastöðum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2012 287 2.375 kr.
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.290 kr.
spinner
Rafbók 2012 990 kr.
spinner
Geisladiskur 2012 Mp3 1.090 kr.
spinner

Um bókina

Á nýársnótt 2009 hittir lögfræðingurinn Stella Blómkvist lettneska nektardansmey sem hefur áhyggjur af vinkonu sinni sem virðist gufuð upp. Þegar Stella blandar sér í málið hverfur sú stúlka líka. Á Litla-Hrauni situr litháískur dópsmyglari sem segist engin tengsl hafa við Ísland en er með nafn Stellu skrifað á miða.

Eftir forsetaveislu á Bessastöðum finnst illa farið lík þekkts fjármálamanns við altarið í kirkjunni. Stellu grunar að valdamiklir vinir hans viti meira um málið en þeir vilja kannast við. Og á Austurvelli magnast búsáhaldabyltingin …

Stella Blómkvist er söm við sig, eitilhress og harðsoðin, ratar vel um undirheima samfélagsins jafnt sem krókaleiðir valdakerfis og fjármálaheims og tekst óhrædd á við andstæðinga með spakmæli mömmu gömlu á vörunum.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 17 mínútur að lengd. Aníta Briem les.

Tengdar bækur