Kvíðasnillingarnir

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.990 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner
Kilja 2014 300 3.190 kr.
spinner

Kvíðasnillingarnir

Útgefandi : JPV

490 kr.3.190 kr.

Kvíðasnillingarnir
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.990 kr.
spinner
Rafbók 2014 490 kr.
spinner
Kilja 2014 300 3.190 kr.
spinner

Um bókina

Hversu mikið hnjask þolir eitt strákshjarta?

Í sögu þriggja drengja, sem brátt verða unglingar og fyrr en varir fullorðnir menn, dregur höfundur upp frumlega og sprellfjöruga mynd af hlutskipti karla í samtímanum. Lesandinn flakkar á milli áratuga í huggulegri pappírstímavél; dregur að sér moldardauninn í Hostel Torfbæ, heyrir kjökur og blús á Aumingjahælinu, kastar mæðinni í Griðarstað stráka og kynnist aragrúa eftirminnilegra persóna, þar á meðal fríðum flokki af lævísum draumaprinsessum sem hrista upp í viðkvæmu tilfinningakerfi kvíðasnillinganna þriggja.

Hér kveður sér hljóðs ný rödd í íslensku bókmenntalífi. Kvíðasnillingarnir er fyrsta skáldsaga Sverris Norland og hlaut nýræktarstyrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta. Óvenjuleg stílgáfa helst í hendur við gráa íróníu, einlæga samkennd og óþrjótandi hugmyndagleði. Þetta er bók sem á erindi við samtíma sinn, full af hlýju, mannskilningi, gleði og töfrum.

„Líklega mætti súmmera þema bókarinnar upp einhvern veginn svona: Langar okkur ekki öll að vera hamingjusöm, rækta hæfileika okkar, finna ástina, bægja burt kvíðanum og verða heilsteyptar og vandaðar manneskjur? Ég held að bókin fjalli að mestu leyti um slíka drauma og leitina að samastað í tilverunni. Að verða ástfanginn af einhverjum sem fagnar manni eins og maður er og kennir manni að slappa af. Að kynnast því hvernig vinirnir geta svikið mann og hvað það er nauðsynlegt að fyrirgefa þeim og fatta um leið að það er allt í lagi að klúðra stundum málum og láta bara allt fara í steik, þannig er það einfaldlega að vera mennskur. Við erum flest, ef ekki öll, hálfgerðir kvíðasnillingar.“
Sverrir Norland í viðtali við Friðriku Benónýsdóttur

ATH. Spurt og svarað um rafbækur.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 19 mínútur að lengd. Einar Aðalsteinsson les.

6 umsagnir um Kvíðasnillingarnir

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur