Kínverjinn

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2023 App 1.990 kr.
spinner
Kilja 2009 990 kr.
Rafbók 2022 990 kr.
spinner

Kínverjinn

Útgefandi : MM

990 kr.1.990 kr.

Kinverjinn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2023 App 1.990 kr.
spinner
Kilja 2009 990 kr.
Rafbók 2022 990 kr.
spinner

Um bókina

Kínverjinn, eftir sænska metsöluhöfundinn Henning Mankell, er gífurlega spennandi saga um hatur og hefnd þar sem höfundurinn er algjörlega í essinu sínu. Mankell ferðast vítt og breitt með lesandann og heldur honum í heljargreipum allt fram á síðustu síðu.

Í ársbyrjun 2006 eru framin óhugnaleg morð í litlu þorpi í Svíþjóð þar sem eingöngu býr eldra fólk. Í ljós kemur að öll fórnarlömbin eru skyld; öðrum þorpsbúum var hlíft. Kunnur ofbeldismaður játar á sig verknaðinn en Birgitta Roslin dómari trúir honum ekki. Hana grunar að kínverskur maður sem dvaldi eina nótt á hóteli í nærliggjandi bæ tengist þessum hrikalegu glæpum. En hvers vegna ætti Kínverji að drepa sænska eftirlaunaþega?

Sögunni víkur alla leið til miðrar 19. aldar þegar kínverskir karlmenn voru fluttir tugþúsundum saman yfir hafið til Ameríku og skikkaðir í þrælavinnu við lagningu járnbrautarteina. Gamlir glæpir gleymast ekki.

„Kínverjinn er fyrst og fremst saga um hatur og hefnd sem umlykur margar kynslóðir. Þar tekst höfundinum frábærlega upp, hreint stórkostlega.“
Aftenposten

„Prýðilega saminn þriller og metnaðarfullur… fín bók.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Kiljan

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 17 klukkustundir og 32 mínútur að lengd. Álfrún Helga Örnólfsdóttir les.

Tengdar bækur