Jöklar á Íslandi

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 479 12.990 kr.
spinner

Jöklar á Íslandi

Útgefandi : MM

12.990 kr.

Jöklar á Íslandi
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 479 12.990 kr.
spinner

Um bókina

Jöklar á Íslandi er mikið rit byggt á áratuga rannsóknum Helga Björnssonar og samstarfsmanna hans við Háskóla Íslands og víðar. Bókin lýsir jöklum þessa lands og sam-búð þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til okkar daga, hvernig jöklar hafa mótað landið og eytt. Bókin segir sögu þekkingaröflunar og skilnings á jöklum frá því fyrst var farið að rannsaka þá fram til nútímarann-sókna. Rakin eru spor löngu horfinna jökulbreiða, hulunni svipt af landinu undir jöklum Íslands og greint frá líklegri framtíð þeirra.

Myndefni er fjölbreytt, ljósmyndir, skýringarmyndir, landakort, gervihnattarmyndir og þrívíð kort af lands-lagi undir jöklum sem nú birtast í fyrsta sinn almenningi á prenti. Enn geta menn ekki litið þann hluta Íslands augum með öðrum hætti.

Helgi Björnsson er á meðal fremstu fræðimanna á sínu sviði. Í rúma fimm áratugi hefur hann unnið að jöklarannsóknum á Íslandi og kynnt almenningi rannsóknir sínar með fyrirlestrum og fræðigreinum. Á ferðum sínum um Ísland skilur Helgi sjaldan myndavélina við sig, og því falla ljósmyndir og texti saman í eina heild í þessari bók.

Tengdar bækur