Indjáninn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 201 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 201 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Um bókina
Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vandamál að stríða sem valda honum erfiðleikum í uppvextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, rautt hár og nærsýni. Hann er hugmyndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættuleg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu.
Þetta er áhrifamikil uppvaxtarsaga sem sveiflast á milli strákslegrar gleði og nístandi einmanaleika þess sem ekki er alltaf í takt við umhverfið, en jafnframt er hér brugðið upp ljóslifandi mynd af samfélagi áttunda áratugarins frá sjónarhorni barnsins.
Höfundurinn, Jón Gnarr borgarstjóri, kallar Indjánann skáldaða ævisögu og segir í eftirmála sínum: „Margir spyrja sig eflaust hvort þesssi bók sé ævisaga eða skáldsaga. Hún er bæði. Hún er ekki alveg sönn. Það er þó engin bein lygi í henni.“ Meðhöfundur bókarinnar er Hrefna Lind Heimisdóttir.
Endurskoðuð gerð af bókinni kom út árið 2019 og er einnig til sem rafbók.
1 umsögn um Indjáninn
Kristrun Hauksdottir –
„Nöturleg og fyndin upplifun barns sem upplifir sig utangarðs.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið