Í víglínu íslenskra fjármála

Útgefandi: VH
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 431 4.690 kr.
spinner

Í víglínu íslenskra fjármála

Útgefandi : VH

4.690 kr.

Í víglínu íslenskra fjármála
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 431 4.690 kr.
spinner

Um bókina

„Hvergi var hrunið eins harkalegt og á Íslandi og ekkert ríki var eins fljótt að ná sér aftur.“

Árið 2009 var Svein Harald Øygard óvænt boðið að gerast seðlabankastjóri á Íslandi til bráðabirgða – sem erlendir fjölmiðlar sögðu vera versta seðlabankastjórastarf á Vesturlöndum. Fyrir hrun hafði hann fylgst með trylltum veisluhöldum landans og heyrt áhyggjuraddir magnast um að í óefni stefndi. Nú hafði ólánið riðið yfir og fram undan var það nánast óyfirstíganlega verkefni að reisa við ogbyggja upp á ný.

„Þetta hlutverk veitti mér einstakt tækifæri til þess að fylgjast með landi og þjóð, ríkinu og stofnunum þess, og jafnframt ofurefli hnattræns bankakerfis, fjármagns og hagfræði.“

Með afburðaþekkingu og víðtæka reynslu að vopni, ásamt glöggu gestsauga, skoðar Svein Harald einhverja örlagaríkustu daga í sögu okkar frá nýju sjónarhorni.

Ólöf Pétursdóttir þýddi.

Tengdar bækur