Huldukonur í ísl. myndlist

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2005 - 4.375 kr.

Huldukonur í ísl. myndlist

Útgefandi : MM

4.375 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2005 - 4.375 kr.

Um bókina

Lengi hefur hlutur kvenna í íslenskri myndlist í upphafi 20. aldar verið sveipaður hulu og ítið sést af verkum þeirra. Í þessari bók eru hins vegar leiddar fram tíu íslenskar konur sem héldu til myndlistarnáms erlendis á síðustu áratugum 19. aldar og upp úr aldamótum. Allar sneru þær heim aftur en engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi og aðeins tvær héldu sýningar á verkum sínum. Hér fjallar Hrafnhildur Schram listfræðingur um líf þeirra og list og sýnir fram á mikilvægt framlag þeirra til íslensks menningarlífs. Þær ruddu brautina fyrir aðra sem á eftir komu og eiga skilinn sinn sess í sögu íslenskrar myndlistar. Konurnar sem koma við sögu eru Þóra Pjetursdóttir Thoroddsen, Þóra Jónsdóttir Magnússon, Kristín Vídalín Jacobson, Þuríður Jakobsdóttir Kvaran, Kristín Þorvaldsdóttir, Kristín Þorláksdóttir Bernhöft, Sigríður Björnsdóttir, Sigríður María Gunnarsson, Johanne Finnbogason, sem síðar nefndi sig Hönnu Davíðsson  og Svava Þórhallsdóttir.

Bókin er ríkulega búin myndum, jafnt myndum af verkum huldukvennanna í fullum litum sem og gömlum ljósmyndum af umhverfi þeirra og samtíð.

Tengdar bækur